Rafhlaðan hlaðin
Hlaða skal rafhlöðuna áður en höfuðtólið er tekið í notkun.
Þegar hleðslutæki er tekið úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu snúru hleðslutækisins við tengi höfuðtólsins. Rauða stöðuljósið verður
grænt þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
3 Hleðslutækið er fyrst tekið úr sambandi við höfuðtólið, síðan úr
rafmagnsinnstungunni.
Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 7 klst. í tali, allt að 6 klst. í tónlistarspilun eða allt að
120 klst. í bið.
3
Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna fresti og rauða
stöðuljósið blikkar. Rauða stöðuljósið lýsir meðan á hleðslu stendur.
Hleðsla rafhlöðunnar könnuð
Ýttu á þegar höfuðtólið er tengt við farsímann. Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef ljósið er
rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.