Um höfuðtólið
Með Nokia Bluetooth BH-111 steríóhöfuðtólinu geturðu talað handfrjálst í símann og
hlustað á uppáhaldstónlistina þína hvar sem er. Auðvelt er að para höfuðtólið við
samhæf tæki og fljótlegt er að skipta milli tónlistar og símtala.
Yfirborð þessarar vöru inniheldur ekki nikkel.
Viðvörun:
Þessi vara getur innihaldið smáa hluti. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
Sumir hlutar vörunnar eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að vörunni. Ekki skal
geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt vörunni því
upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
Lestu þessa notendahandbók vandlega áður en varan er tekin í notkun. Lestu einnig
notendahandbókina sem fylgir tækinu sem tengt er við vöruna.